Verið velkomin á vef Lögmanna við Austurvöll
LVA-Lögmenn við Austurvöll er rótgróin lögmannsstofa í hjarta miðbæjarins. Stofan hefur frá stofnun veitt einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum vandaða ráðgjöf og þjónustu. Þar starfa nú 10 manns, þar af 6 lögmenn með mikla reynslu af flestum sviðum lögfræðinnar.

LVA býður upp á alhliða lögfræðiþjónustu. Lögmenn stofunnar hafa alla tíð lagt mikið upp úr því að aðstoða einstaklinga og fjölskyldur með öll lagaleg vandamál. Þeir hafa einnig mikla reynslu af þjónustu við innlend og alþjóðleg fyrirtæki og öllu sem viðkemur rekstri þeirra. Eru fjölmörg virt fyrirtæki í föstum viðskiptum við stofuna. Jafnframt hafa lögmenn LVA starfað mikið á sviði hugverkaréttar og hafa mikla reynslu á því sviði.

Áhersla er lögð á vandaða og árangursríka þjónustu.

Lögmenn LVA starfrækja jafnframt innheimtustofuna Rein ehf. sem sérhæfir sig í lögfræðilegri innheimtu og hefur verið starfrækt frá árinu 1995.

Hafðu samband!




Lögmenn við Austurvöll

veita einstaklingum, fyrirtækjum

og stofnunum vandaða

ráðgjöf og þjónustu.


~


Starfsmenn hafa mikla reynslu

af þjónustu við innlend

og alþjóðleg fyrirtæki og öllu

sem viðkemur rekstri þeirra.

Eru fjölmörg virt fyrirtæki í

föstum viðskiptum við stofuna.